Crochet steeking – Opin lopapeysa en engin saumavél

Ég rakst á þessa aðferð við að gera opnar peysur um daginn og fannst algjör snilld. Ég hata að sauma kantinn í saumavél, finnst alltaf eins og hann verði stífur og ómögulegur.

Allavega þá beið ég ekki boðanna og skellti í eina opna lopapeysu.

Það fyrsta sem maður þarf að hugsa um er að gera ekki tvær brugnar upp bolinn heldur 3-7 sléttar í staðin. Það verður að vera oddatala og ég myndi frekar velja 5-9 heldur en 3. Sem sagt, ef uppskriftin segir að fitja eigi upp 155 lykkjur fyrir bolinn þá myndi maður t.d. fitja upp 160 og þá væru 5 aukalykkjur sem væru þá í upphafi/lok umferðar og myndu tákna miðjuna framaná (bara alveg eins og þegar maður gerir tvær brugnar).

Síðan prjónar maður bara eftir uppskrift eins og venjulega. Það eina sem maður þarf að passa er að í munstrinu verður maður að prjóna aukjalykkjurnar þannig að þær verði röndóttar þ.e. ein lykkja í lit A og svo ein í lit B o.s.frv. (sést betur á myndunum). Þetta er gert til þess að engir langir spottar liggi bakvið lykkjurnar þar sem maður klippir.

Svo þegar búið er að prjóna, ganga frá endum og það allt þá byrja skemmtilegheitin:

Fyrst finnur maður miðjulykkjuna af aukalykkjunum og heklar fastapinna í helminginn af henni og helminginn af næstu lykkju alla leiðina niður (eða upp). Síðan gerir maður það sama við hinn helminginn og lykkjuna hinumegin. Ég mæli reyndar með því að skoða http://www.eunnyjang.com/knit/2006/01/the_steeking_chronicles_part_i.html

til að fá betri og nákvæmari útskýringu á þessu.

Ég notaði léttlopa og litla nál til að hekla en peysan er úr þreföldum plötulopa. Ég las einhverstaðar að það væri betra að nota fínna garn ef maður getur. Maður verður bara að passa að garnið geti þæfst.

Þegar maður er búinn að hekla báðu megin þá er bara klippt á milli.

Að lokum brettir maður kantinn inn og heklar annan kant eða saumar rennilás beint í. Það er út af þessu sem það er betra að hafa fleiri en 3 aukalykkjur. Þá verður breiðari kantur inni í peysunni sem mér finnst bæði fallegra og öruggara upp á að ekkert rakni upp.

Peysan mín hefur ekki enn raknað upp. Ég setti rennilás í hana og finnst þetta bara æði.

13 athugasemdir við “Crochet steeking – Opin lopapeysa en engin saumavél

  1. takk fyrir að setja þetta fram svona myndrænt. ég ætla að nota þessa aðferð næst þar sem það er alltaf að rakna upp hjá mér því ég er með lélega saumavél

    Líkar við

  2. Sæl, sniðug aðferð, takk fyrir upplýsingarnar. Mætti ég nokkuð spyrja úr hvaða blaði þetta munstur er. Mjög flott peysa hjá þér:)
    kv.Selma

    Líkar við

  3. þetta er ekkert smá sniðugt, ég bjó til prufu og þetta er svo einfalt 🙂 takk æðislega fyrir að setja þetta hér á bloggið þitt, núna verða peysurnar einfaldari þar sem ég á ekki saumavél, verst bara að ég sá þetta ekki fyrr en að ég var hálfnuð með peysuna sem ég er að gera núna, helduru að það sé hægt að hekla svona á röngunni þar sem að ég gerði brugðnar lykkjur í miðjunni ??

    kveðja, Sara

    Líkar við

Færðu inn athugasemd