Ég hef ekkert verið allt of dugleg að sinna blogginu síðustu mánuði. Líklegast því ég lagðist í smá handavinnudvala eftir að ég byrjaði að vinna. Nú er þetta hins vegar allt að koma aftur og í vikunni kláraði ég tvær peysur.
![]() |
Þetta er peysan Styrkur úr Lopi 29. Ég gerði hana úr létt lopa frekar en tvöföldum plötulopa. Þannig verður hún miklu léttari og ekki eins heit. |
Fyrr í haust kláraði ég svo þessa:
![]() |
Munstrið kemur úr gamalli Álafoss uppskrift en sniðið bjó ég til sjálf. Hún er gerð úr tvöföldum plötulopa og valdi eigandinn litina sjálfur. |
Nú er ég að verða búin með allar pantanir og get ekki beðið eftir að byrja á öllum skemmtilegu verkefnunum handa mér og fjölskyldunni. Þau eru ófá og stærðin á garnhrúgunni minni í takti við það.
Karlmannspeysan, er hægt aðkaupa uppskriftina hjá þér? Kveðja Alva Kristín.
alvak@simnet.is.
Líkar viðLíkar við
Langar til að athuga með hvort ég get nálgast uppskrift á peysunni Mosi finnst peysan mjög falleg og langar til að prjóna hana.
Líkar viðLíkar við
Hæ, hvar fæ ég uppskrift af gráu peysunni með svarta munstrinu ( kuldi ? )
Kveðja Bryndís Helga
Líkar viðLíkar við