Heklaða sjalið mitt

Kláraði þetta fína sjal um daginn og er alveg ofboðslega ánægð með það. Upphaflega langaði mig að gera svart/hvítt sjal en svo þegar ég fann ekki þannig garn sem ég var ánægð með ákvað ég að splæsa í þennan hrikalega fallega lit frá Evilla.
Það fóru tæplega tvær 220g hespur í sjalið og það er hrikalega þykkt og kósý. Hugsa samt að næst myndi ég nota stærri heklunál til að fá betra „drape“ í sjalið.
Uppskriftin er af Ravelry og má finna undir Bonita patterns.

Ein athugasemd við “Heklaða sjalið mitt

Færðu inn athugasemd