Sólin er loksins komin að gleðja íbúa höfuðborgarsvæðisins og nýti ég mér það til hins ítrasta. Á meðan ég sit úti á svölum dunda ég mér við að prjóna ýmislegt smálegt á ófædda krílið eins og sokka. Bestu sokkar sem ég get hugsað mér á ungabörn eru svokallaðir spíralsokkar. Þeir eru ekki með neinum hæl og vaxa þar af leiðandi eiginlega með barninu. Að auki finnst mér þeir haldast mjög vel á.
Ég læt hér fylgja með uppskrift af spíralsokkum á nýfædd kríli. Þeir eru frekar litlir en hægt er að stækka þá annað hvort með því að bæta við 4 lykkjum (eða 8, 12, 16 o.s.frv.) eða með því að nota stærri prjóna og grófara garn. Svo má auðvitað prjóna þá eins langa og hver vill.
Í sokkana þarf:
Baby garn (eða eitthvað fingering weight garn) og prjóna nr. 2,5. Prjónfesta skiptir eiginlega ekki máli.
Fitjið upp 28 lykkjur og tengið í hring.
Umferðir 1-6: 2 l slétt og 2 l brugðið út umferð.
Ohh ég vildi að ég kynni að skilja svona uppskriftir og gæti prjónað eftir þeim 😦
Líkar viðLíkar við
sammála bestu sokkarnir, og hægt að nota líka sem vettlinga
Líkar viðLíkar við